Fátæki námsmaðurinn
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
Leitarbox

21.11.2008 22:22:14 / frk_sara

Komin aftur

Ég er að pæla í að prófa að fara að blogga aftur. En það skiptir varla máli þar sem að enginn kemur á bloggið mitt. En samt....

» 1 hafa sagt sína skoðun

14.03.2007 16:24:46 / frk_sara

Lífsmark

Langt síðan síðas. Er bara á kafi í skólanum sem er greinilega þess virði því að ég fékk 10.0 í stærðfræðiprófi í dag.Þetta er bara svona lítið próf sem gildir ekki jafn mikið og kaflaprófin en gildir þó eitthvað. Þannig að það var ágætis bensín að fá þá einkun.Annars er svolítið mikið að gera í skólanum og ég sé fram á það að þurfa að giftast skólabókunum mínum um páskana. Annað hvort það eða að drukkna í lærdómi rétt fyrir próf og það er nú heldur seint í rassinn gripið þegar að kúkurinn er dottinn. Þannig að ég kýs frekar að lesa og læra í páksafríinu mínu því að ég ætla ekki að vinna neitt aukalega. Illu er best af lokið sagði konan og skeindi sér áður en hún skeit.

  

Helena syss spjallaði við mig á MSN áðan og var að spyrja hvort að ég vildi koma og vinna á Grænum Kosti í sumar. Ég fór að spyrja útí launin og svona sem virðast vera ágæt að ég held en hún var ekki viss með vinnutímann. Ég er semsagt að fara að hitta Hjördísi eiganda á föstudaginn og spyrjast útí þetta því að Samkaup er að spyrja mig hvort að ég ætli ekki að vinna hjá þeim í sumar. Mig langar ekkert að vera að vinna eitthvað bilað mikið ef ég á að segja einsog er. Mig langar til þess að halda mínum vöktum í Sam sem eru þriðjudagar 6-10 og önnur hver helgi 9-20 og það er að gefa mér ágætis pening. En fyrst að maður er að safna sér fyrir íbúð og svona þá kanski verður maður að svitna fyrir það og vinna like a crazy person í sumar. Hver veit. Þarf að ræða þetta við unnustann J

 

Við Lækjurnar erum að fara að hittast ( vinkonurnar úr Lækjó) núna á morgun. Heiða og Kata völdu glataða staðsettningu til þess að hittast. Þær völdu nefninlega Hressó því að það er svo þröngt á Súf. Ég hélt að þröngt væri gott J En það sem er svo slæmt við Hressó er það að það koma yfirleitt glataðir trúbadorar þarna og ég tala ekki um ef það er fimmtudagur! En allavega við ætlum að hittast þar og slúðra einsog konum einum er lagið.

 

Takk og bless hafið góðan dag.


» 4 hafa sagt sína skoðun

21.02.2007 15:15:22 / frk_sara

Öskudagur!!!oj

Í dag er öskudagur.Af því tilefni ætla ég að skrifa fyrir ykkur lag sem að ég og Inga sömdum og fluttum um búðir og sjoppur höfuðborgarsvæðisins þegar að við vorum ungar að aldri.Inga var Karíys og ég íklædd Baktus búningi.

 

Allavega þetta er sungið við lagið Krummi krunkar úti.

Gjörið þið svo vel

 

Davíð krúnkar úti,kalla á Jón Baldvin

ég fann peningasjóðinn,hrygg og gæruskinn

komdu nú og hirt´etta með mér Jón Baldvin vinur minn

komdu nú og hirt´etta með mér Jón Baldvin vinur minn.

 

Svona var þetta nú,ef að mig minnir rétt þá hló fólk mjööög mikið af Karíusi og Baktusi.

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

12.02.2007 17:27:15 / frk_sara

OJjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjj bilað pirruð

Jæja ég er núna búin að lýsa skólanum einsog að allt gangi mér í haginn og ég svífi um á bleiku skýi.Eeeeeen núna kom alltíeinu fellibylur!!Ég er að fara að drulla á mig í STÆ núna á morgun (Þriðjudag).Kennarinn minn svokallaði ætlar að hafa próf á morgun í einhverju sem hún er ekki búin að kenna!!!Ég er að fara að athuga hvort að það standi einhverstaðar á heimasíðu skólans að  þessi stærðfræði áfangi minn heiti nokkuð “Sjálfmenntun í STÆ” því hún er ekki að kenna rassgat.Glötuð gella.Ég er orðin það pirruð að ég er á barmi þess að fara að fríking grenja.Það er tími hjá henni á morgun og þar á ég eftir að hella mér yfir hana með tárin í augunum af pirri fyrir framan allan bekkinn.Sé þetta alveg fyrir mér.Ojjj ég er svo brjáluð.Í alvöru talað þá er ég sjúklega langt á eftir áætluninni sem hún setti upp en ég hef ekki sleppt einum tíma hjá beyglu.Maður má fá skítlélega einkunn úr einu svona prófi eða sleppa því algjörlega því það er eitt próf sem er ekki reiknað með í lokaeinkunn en ég fór að hugsa þar sem að hún kennir ekki neitt þá á ég eftir að þurfa á því að halda síðar á önninni pottþétt.Þannig að ég er dauðans matur,algjörlega.  Æðislegt,furðuleg kennsluaðferð hjá henni.  Hef ekkert gott að segja núna þannig að ég ætla að hætta þessu væli bara.  Fokking bless   

» 3 hafa sagt sína skoðun

05.02.2007 13:16:57 / frk_sara

Ný vika hafin

Þá er fríhelgin búin......fljót að lýða þessi blessaða helgi.Ég og Geiri fórum í bæinn að skoða á útsölum.Ég sver það... mér leið einsog að ég væri í útlöndum!Það voru eiginlega engir Íslendingar þarna,þetta voru svona götumarkaðir í Smáralind og Kringlunni.Bilað mikið af úlendingum.En á svona stunudum,útsölustundum þá þoli ég ekki að vera kvenmaður.Þær rífa allt og tæta og henda því svo bara á gólfið ef þetta er ekki eitthvað sem að þær passa í eða eru að fíla.En ef að maður fer í karladeildina þá er allt voða snyrtilega brotið saman og allt að drepast úr skipulagi og snyrtileika.Hvað er að ykkur konur!!!!

Við skelltum okkur líka í bíó.Fórum á Children of men.Mergjuð mynd,mæli með henni.Samt fannst mér allt svo sorglegt við hana.Ég er að segja ykkur það að ef að ég væri ólétt og hormónarnir mínir óstabílir þá hefði ég mjög sennilega grenjað út alla myndina.Ég var búin að heimta af mömmu að hún myndi baka sem hún og gerði að sjálfsögðu fyrir yngsta ungann sinn sem er ekki floginn úr hreiðrinu.Dekur dekur dekur.

 

 



Ahh við erum að fara í ræktina í kvöld og ég get varla beðið.Hlakka ýkt til.Mig langaði samt svo ýkt í púlsmæli en ég á ekki fyrir honum þennan mánuðinn...það verður bara að bíða betri tíma.Ég held að ég hafi ekkert farið í ræktina í síðustu viku því að við vorum bíllaus og þá er það svo mikið mál þegar að maður er í skólanum svona lengi.En sem betur fer er Geiri kominn á bílinn og kemur bara og sækir mig í skólann hálf sex og kemur með dótið mitt þannig að við getum bara farið beinustu leið í ræktina og svo heim að læra.Geggjað gott að vera byrjaður að hreyfa sig maður.Get bara ekki beðið eftir að sjá árángur.Væri ágætt að sjá eitthvað af þessum aukakílóum fjúka.Það tekur ekkert langan tíma ef að maður passar uppá mataræðið og svona líka.Kemur allt í ljós.

 

 



Geiri er hættur að reykja og ég er svo stollt af honum.Ýkt duglegur þessi elska.Maður ætti að fara að apa þetta upp eftir honum.Gera slíkt hið sama er ekki svo vitlaust.

 

 



En  ég er að fara í tíma,heyrumst og sjáumst.

 

 



Hafið góðan dag.


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.02.2007 10:39:07 / frk_sara

Nýjasta nýtt

Jæja langt siðan siðast.Það sem stendur uppúr síðan að ég skrifaði síðast mun líklega vera árekstur.Já hún bílhrædda Sara sem er að fara á taugum í hvert skipti sem hún sest upp í bíl fékk loksins ásæðu til þess að fara á taugum.Ég og Geiri vorum að koma úr ræktinni í góðu grilli,það er fimmtudagur og klukkan um 21:30,það er smá hálka á vegum.Saltbíllinn farinn að salta götur og stræti höfuðborgarsvæðisins.Við erum hjá Nóatúni í Hafnarfirði og það er bíll fyrir framan okkur.Grænt ljós.Við erum alveg að komast yfir þegar að gult ljós kemur.Konan fyrir framan okkur er kominn á línuna en nauðhemlar og Geiri líka,nema hvað að við rennum á konu ######******tu****tí*****beigl******.Vinnubíllinn hans Geira beiglast mjög við þetta en ljósin brotna ekkert eða neitt þannig.Sem betur fer er alltílagi með Geira og alla.Við förum útúr bílnum og ég sver það,ég hélt að lungun á mér væru fallinn saman eða þá að ég væri að fá alvarlegt astmakast og ég er ekki astmasjúklingur.Fer að anda einhvernveginn á mjög dramatískan hátt og skelf einsog flogasjúklingur,eða einsog Geiri kallaði það þá fékk ég “Geðveikiskast”.Hressandi.

Lögreglan kemur á staðinn og segir þeim að fylla bara út tjónaskýrslu.Þá spyr helv***** konan lögregluna hvort að hún geti gert þetta fyrir hana.Hún neitar því.Á þessum tímapunkti þá er ég að kveikja í minni 2 sigarettu á 3 mínútum eða svo,astmakastið og samfallna lungað farið að lagast.Geiri og konu tí*** ákveða að fara og fylla þetta út á Nóatúns bílastæðinu.Ég ákvað að fara fótgangandi,dramað uppmálað.Geiri er enga stund að fylla sitt út en konan spyr hvort að Geiri geti gert hennar.Hann segist ekki meiga það.Endar samt á því að þurfa að fylla þetta út að mestu leyti fyrir hana.Alltieinu er konan næstum því dottin.Bara alveg uppúr þurru.Mjög undarlegt.Ég spyr Geira hvort að hún sé nokkuð full,en hann segir að hún hafi oft verslað upp í 10-11 hjá honum og væri svona í skrítnari kanntinum.Ég var samt alveg pottþétt á því að hún væri eitthvað dópuð eða eitthvað en Geiri sagði að hún væri alltaf svona.Svo kemur að því að skrifa upplýsingar um ökuskírteini.Hennar gilti til 1991.Sem er fáránlegt.Geiri skrifar það á tjónaskýrsluna en hringir í lögregluna seinna um kvöldið og spyr hvernig það er með svona útrunnið ökuskírteini.Löggan sagði að þetta væri nú heldur betur í lagi því að hún fékk ökuskírteinið sitt þegar að það voru aðrar reglur í gangi,þannig að hún þarf ekki að endurnýja fyrr en hún er 70.Vona að hún drepi engann þangað til.Hún var ekki nema svona 50 eða eitthvað þannig að hún fær að ganga lausum hala með sitt undarlega ökulag í allavega 20 ár í viðbót áður en hún þarf að endurnýja.Mín kenning er sú að hún sé með að berjast við geðrænan sjúkdóm og þurfi því að taka mjög sterk lyf til þess að halda honum í skefjum sem gera það að verkum að hún verði einsog að hún sé ölvuð og að hún mætti ekki keyra á meðan hún neytir lyfjanna.En allir sem keyra aftan á eru í órétti þannig að það er ekkert við þessu að segja.

 

Skólinn:

 

Jæja núna er skólinn kominn á fullt skrið.Endalaus próf útum allt.Ég er alveg að brillera, orðinn algjört nörd í stíl við gleraugun mín.J

Búinn að fara í 3 próf í STÆ fékk 8,4 í einu og 9,4 í öðru,á eftir að fá úr því 3 en það gildir mest inn í lokaeinkunina.Búinn að fá 9 í ÍÞR og 8.8 í HTM og reyndar bara 7 fyrir stíl í ENS,ég er í lélegri kanntinum í stafsettningu.

 

Sjáum til hvernig mér gengur i áframhaldinu, ég er með 100% mætingu í öllu nema ÍSL fór í endajaxlatöku og mætti ekki í einn tíma í ÍSL og fékk þá fjarvist.Glatað.

 

En ég læt ykkur vita hvernig mér gengur áfram.

 

Takk bless


» 1 hafa sagt sína skoðun

01.02.2007 10:39:04 / frk_sara

Nýjasta nýtt

Jæja langt siðan siðast.Það sem stendur uppúr síðan að ég skrifaði síðast mun líklega vera árekstur.Já hún bílhrædda Sara sem er að fara á taugum í hvert skipti sem hún sest upp í bíl fékk loksins ásæðu til þess að fara á taugum.Ég og Geiri vorum að koma úr ræktinni í góðu grilli,það er fimmtudagur og klukkan um 21:30,það er smá hálka á vegum.Saltbíllinn farinn að salta götur og stræti höfuðborgarsvæðisins.Við erum hjá Nóatúni í Hafnarfirði og það er bíll fyrir framan okkur.Grænt ljós.Við erum alveg að komast yfir þegar að gult ljós kemur.Konan fyrir framan okkur er kominn á línuna en nauðhemlar og Geiri líka,nema hvað að við rennum á konu ######******tu****tí*****beigl******.Vinnubíllinn hans Geira beiglast mjög við þetta en ljósin brotna ekkert eða neitt þannig.Sem betur fer er alltílagi með Geira og alla.Við förum útúr bílnum og ég sver það,ég hélt að lungun á mér væru fallinn saman eða þá að ég væri að fá alvarlegt astmakast og ég er ekki astmasjúklingur.Fer að anda einhvernveginn á mjög dramatískan hátt og skelf einsog flogasjúklingur,eða einsog Geiri kallaði það þá fékk ég “Geðveikiskast”.Hressandi.

Lögreglan kemur á staðinn og segir þeim að fylla bara út tjónaskýrslu.Þá spyr helv***** konan lögregluna hvort að hún geti gert þetta fyrir hana.Hún neitar því.Á þessum tímapunkti þá er ég að kveikja í minni 2 sigarettu á 3 mínútum eða svo,astmakastið og samfallna lungað farið að lagast.Geiri og konu tí*** ákveða að fara og fylla þetta út á Nóatúns bílastæðinu.Ég ákvað að fara fótgangandi,dramað uppmálað.Geiri er enga stund að fylla sitt út en konan spyr hvort að Geiri geti gert hennar.Hann segist ekki meiga það.Endar samt á því að þurfa að fylla þetta út að mestu leyti fyrir hana.Alltieinu er konan næstum því dottin.Bara alveg uppúr þurru.Mjög undarlegt.Ég spyr Geira hvort að hún sé nokkuð full,en hann segir að hún hafi oft verslað upp í 10-11 hjá honum og væri svona í skrítnari kanntinum.Ég var samt alveg pottþétt á því að hún væri eitthvað dópuð eða eitthvað en Geiri sagði að hún væri alltaf svona.Svo kemur að því að skrifa upplýsingar um ökuskírteini.Hennar gilti til 1991.Sem er fáránlegt.Geiri skrifar það á tjónaskýrsluna en hringir í lögregluna seinna um kvöldið og spyr hvernig það er með svona útrunnið ökuskírteini.Löggan sagði að þetta væri nú heldur betur í lagi því að hún fékk ökuskírteinið sitt þegar að það voru aðrar reglur í gangi,þannig að hún þarf ekki að endurnýja fyrr en hún er 70.Vona að hún drepi engann þangað til.Hún var ekki nema svona 50 eða eitthvað þannig að hún fær að ganga lausum hala með sitt undarlega ökulag í allavega 20 ár í viðbót áður en hún þarf að endurnýja.Mín kenning er sú að hún sé með að berjast við geðrænan sjúkdóm og þurfi því að taka mjög sterk lyf til þess að halda honum í skefjum sem gera það að verkum að hún verði einsog að hún sé ölvuð og að hún mætti ekki keyra á meðan hún neytir lyfjanna.En allir sem keyra aftan á eru í órétti þannig að það er ekkert við þessu að segja.

 

Skólinn:

 

Jæja núna er skólinn kominn á fullt skrið.Endalaus próf útum allt.Ég er alveg að brillera, orðinn algjört nörd í stíl við gleraugun mín.J

Búinn að fara í 3 próf í STÆ fékk 8,4 í einu og 9,4 í öðru,á eftir að fá úr því 3 en það gildir mest inn í lokaeinkunina.Búinn að fá 9 í ÍÞR og 8.8 í HTM og reyndar bara 7 fyrir stíl í ENS,ég er í lélegri kanntinum í stafsettningu.

 

Sjáum til hvernig mér gengur i áframhaldinu, ég er með 100% mætingu í öllu nema ÍSL fór í endajaxlatöku og mætti ekki í einn tíma í ÍSL og fékk þá fjarvist.Glatað.

 

En ég læt ykkur vita hvernig mér gengur áfram.

 

Takk bless


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.01.2007 14:48:09 / frk_sara

Byrjuð í skólanum

Jæja núna er skólinn byrjaður,yes!!Það er geggjað gaman.Ég er líka með þvílíkt mikinn áhuga fyrir þessu núna og full af metnaði og eyrnamerg.

Mér gengur rosa vel í öllum tímunum held ég.Svolítið erfitt að komast inní forritunina.Er líka bara búin í einum tíma í því.Þarf bara að vera dugleg að fikta í því þegar að netið er komið í lag heima,sem verður vonandi í dag.Mér lýst ágætlega á alla kennarana held ég.Reyndar svolítið óþægilegt þegar að þeir eru að babla eitthvað um forsettningar,atviksorð,veldi eða eitthvað sem maður kann ekkert og segja á eftir “en það þarf ekkert að segja ykkur þetta,þið munið þetta allt úr 10.bekknum” PHÖ!
Ég útskrifaðist úr grunnskóla árið 2000 þið vitið og ég er ekki með neitt stálminni.Ég sagði það líka bara við íslensku kennarann minn eftir 1. tímann að ég væri ekki svona vel að mér í þessu einsog hún væri að ætlast til.Þá sagði hún”já nei það er ekkert hægt að ætlast til þess þegar að fólk er orðið svona gamalt og ekki búið að vera í skóla lengi!!What!!!Hvað er að!!Ég er ekki orðin það gömul að það þurfi að fara að nefna það.Jesús.

Þessa önnina ákvað ég líka bara að vera með ALLAR bækurnar þegar að ég myndi mæta í skólann en ekki vera svona lengi að kaupa þær einsog síðast.Það gekk framar öllum vonum.Ég mætti með allt tip top.Var meira segja gerð að nördinu í 2 tímum.Kennarinn var að tala um hvaða bækur hann ætlaði að kenna um önnina og sér að ég er búin að kaupa bækurnar og biður mig um að halda bókunum uppi og sína bekknum.Ojj nörd.

Ofan á allann þann nörda skap þá er ég að toppa þetta allt með því að vera nörd með nesti einsog ég var búinn að ákveða.Nema að ég keypti mér nestisbox þannig að brauðið er ekki kramið í botninum í nestispoka sem er búinn að rifna og smá blý á skorpunni og kókómjólinn með engu röri einsog ég  var búinn að ákveða.Núna er brauðið alveg blýlaust og rörið á kókómjólkinni en hún er alveg pungvolg samt.Það er geggjað sniðugt að vera nörd með nesti því þá ræður maður alveg hvað maður setur ofan í sig og getur passað hollustuna mikið betur heldur en að vera alltaf að kaupa einhvern bakaríismat eða eitthvað.Svo sparar maður líka þvílíkt á þessu!!

 

Svo er málið núna að fara að hrista á sér spikið í ræktinni.Ég og unnustinn minn æðislegi hann Geiri erum að fara að kaupa okkur kort í World class.Við erum búin að kaupa æðisgengna æfingarskó á útsölu á spott prís alveg.Svo er það bara að fara einu sinni enn og finna sér æfingarklæðnað.Málið er að taka þetta allt voða alvarlega.

Við ætlum að byrja um mánaðarmótin næstu því að ég er að fara í jaxlatöku á fimmtudaginn og Geiri segir að ég megi ekki gera neitt svakalegt sem reynir á í alveg 2 vikur á eftir.Ég á nú eftir að heyra það frá tannlækninum mínum áður en ég fer eftir því.Ef hann segir að ég megi alveg sprikla í ræktinni að vild þá geri ég það.Það er sko verið að fara taka alla 4 endajaxlana og fólk kemur mis vel úr svona aðgerðum.Sjáum til.

 

Þangað til næst.

 

Takk og bless,Sara verðandi tannlausa


» 6 hafa sagt sína skoðun

27.11.2006 14:43:57 / frk_sara

Nýjasta nýtt úr skólamálunum

Þetta fór ekki betur en svo að ég sótti um FB og fékk bréf sem í stóð að ég væri ekki velkominn til þeirra en þökkuðu mér fyrir umsóknina.....phö!!

Ég andast ef ég næ þá ekki inn í Iðnskólann í Rvk.Ég sótti um FB bara sem vara og það gekk ekki þannig að núna verður aðalskólinn minn að standa með mér.Ég fer í þunglyndi aldarinnar ef ég kems ekki í skóla í ár.Fæ ekki svar fyrr en um miðjan des.Ekkert hægt að gera annað en að safna kollvikum og skalla af stressi á meðan.....

Arg.... þetta er erfitt.


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.11.2006 21:31:57 / frk_sara

Skólastelpa....vonandi

Jæja langt síðan síðast.Við Geiri erum búin að trúlofa okkur en þið vitið það væntanlega öll,nema að þú sért einhver ókunnugur sem óvart lenti inná síðunni minni eða ógeðislegur pervert sem er að elta mig og leitar mér upp á netinu.Allt það sama í gangi hjá mér,æðislega gaman!!Nema hvað ég er búinn að sækja um skóla,tók bara klassíkina á þetta og sótti um Iðnskólann í Rvk á Tölvunördafræðibrautina.Svo er ég líka að taka til í fjármálunum mínum,byggja upp sparnað og svona gaman.Búin að segja upp Svarta kortinu mínu fékk mér það bara til að geta keypt elsku fartölvuna mína sem ég er búin að borga núna J hún er mín núna!!Svo núna þegar að ég er búin að taka til í fjármálunum mínum,er sko með besta þjónustufulltrúa í heimi,hana Ingu frænku,þá þýðir það að ég þarf að lifa ódýrt,vera fátækur námsmaður.Hef ég því tekið þá ákvörðun að vera Nörd-með-nesti-í-skólann.Mér finnst það bara sjarmerandi.hehe og ég ætla ekki að vera með nestisbox!!Ég fékk aldrey svoleiðis þegar að ég var lítil og ætla ekki að fá mér slíkt.Heldur ætla ég að hafa þetta einsog í gúdd óld deis!!Fara í töskuna mína í frímínútum og gramsa ýkt lengi þangað til að fólk er farið að horfa og orðið forvitið hvað ég er nú að fara að draga upp úr töskunni,svo loksins dreg ég upp vel beyglaða og krammda samloku með malakoffi í glærum nestispoka sem er bæ ðe vei útataður í blýi og yddi og pungvolga kókómjólk sem ég er búin að týna rörinu af.Sjarmerandi ekki satt?eða hvað?Hvernig lýst ykkur á þetta plan.Mér finnst það ljómandi!
Núna bíð ég bara eftir svari frá skólanum.Vona að ég komist inn!!

» 0 hafa sagt sína skoðun

10.10.2006 21:30:49 / frk_sara

Muniði eftir mér?

Hæ ég er komin aftur!!!Halló halló halló.....

Ekkert að frétta af mér held ég,er bara að vinna og vinna.Er reyndar í fríi 4 daga í mánuði þannig ég veit ekkert hvað maður er að væla :)

Það nýjasta hjá mér er semsagt það að ég er að pæla í að vera skynsöm og er að fara á fjármálanámskeið á morgun og læra að fara með pening :)

Sjáum hvað verður úr því.

Komst að því að maður lætur sjálfan sig komast upp með alltof mikið.Ef ég myndi sjá lítið barn sem væri leyft svona mikið einsog ég myndi ég hrækja á foreldra þess og spyrja hvað í ósköpunum þau væru að meina með þessu svokallaða uppeldi!!!!

Þannig að ég ætla að fara að hætta að leyfa mér hluti og fara að eyða frekar í sparnað.

Læt ykkur vita síðar hvernig mér líkaði námskeiðið.

Tjá

» 5 hafa sagt sína skoðun

22.06.2006 11:27:24 / frk_sara

Rænd!

Erum i Oslo nuna.Einum bakpokanum okkar var rænt i lestinni fra helvitis Sviunum.I teim bakpoka var myndavelin hans Geira videokameran min og bankakortid hans Geira og interrail midarnir okkar.Vid erum buin ad fara til løgreglunar og tilkynna tetta tannig ad vid faum allt endurgreitt fra tryggingunum.Vid vorum semsagt sofandi i svefnklefa med 2 ødrum og einhver hefur komid tarna i nott og rænt okkur a medan ad vid svafum sem fastast,eg med opinn munnin og slef uta axlir orugglega.Hef ekki meiri tima til ad skrifa i bili.En vid erum heil a hufi ekkert skælbrosandi en allti lagi samt. Kvedja Sara og Geiri Ps Kata tu ættir ad vera anægd med tetta blogg. Skrifa meira vid tækifæri

» 8 hafa sagt sína skoðun

18.06.2006 20:00:34 / frk_sara

Prag

Hallo allir saman! Erum i Prag einsog er.

Komum hingad seint i gaerkveldi.Tokum turistan a tetta i dag.Kyktum a Kastalann herna sem er staersta kastaladaemi i heiminum i dag.Forum i siglingu um "Gamla
Prag" tad var mjog gaman.Vorum svo heppin ad "vera ein a bati".Komu engir adrir a sama tima og vid tannig ad vid attum bara batinn.Gasalega kosy.Fengum ekki nog af siglingunni sem var i sirka 45 min tannig ad vid leigdum okkur hjolabat i klukkutima og skodudum okkur um.Turftum ad labba 256 troppur i hringstiga upp i turninn a kastalanum tannig ad vid verdum orugglega mjog aum i fotunum a morgun.

Bloggadi ekkert i Sloveniu (Ljubljana).Tad var allavega flottasta og besta hostelid sem vid hofum verid a ad minum mati.Tad var bara einhver kona sem var buinn ad innretta efrihaedina med 3 svefnherbergjun,1 8 manna og 2 3 manna svo var stort badherbergi med nuddbadkari,sturtu og tvottavel og svo var lika eitt salerni og eldhus.Nada,sem atti tetta var yndisleg og vid Geiri eigum aldrey eftir ad gleyma henni!!!

Vid leggjum af stad til Danmerkur a morgun,um 10 leytid og verdum komin til Koben um 22:00.Planid er ad vera tar i 1 nott fara svo til Svitjhodar i 1 nott og leggja seint af stad tadan til Noregs og vera i Geiranger i 1 nott svo til hennar Live i Midsund.Tad verdur geggjad!!

En nuna er eg ad leka nidur.Blogga orugglega betur sidar.Verid sael og blessud.Lifid heil.

Kvedja Sara og Geiri


» 6 hafa sagt sína skoðun

10.06.2006 20:27:57 / frk_sara

meira fra Rom

Jaeja.Dagurinn i dag var tvilikt erfidur!!Vid forum og skodudum Vatikanid og forum lengst upp i einhvern turn.Valmoguleikarnir voru 2,annad hvort ad borga 7 evrur til ad taka einhverja lyftu sem faeri med mann naestum alla leid en ta tyrfti madur lika ad labba 320 troppur eda fyrir 4 evrur en ta tyrfti madur ad labba alla leid eda 559 troppur.Vid akvadum ad labba allar tessar 559 troppur og vid erum lika buin a tvi nuna,tad er buid ad vera mikid ad gera hja okkur upp a sidkastid og vid erum buin ad labba mjog mikid.Tetta tekur alveg a sko....Forum og saum Colosium i gaer og ta lobbudum vid alveg helling lika.Vid lentum i midri messu i Vatikaninu i dag........andid rolega tad var ekki Pafinn sem var ad messa heldur einhverjir 3 prestar.En tad var samt svallt ad verda vitni ad tessu.Pafinn messar held eg bara a sunnudogum og  tad hefdi verid geggjad ad sja hann  messa.Tvi hann fer bara uta svalir og jarmar einhver gudsord i mikrafon.Og folk getur bara stadid fyrir utan og sed tetta allt..En vid erum ad fara a morgun tannig af vid getum ekki sed hann.Sjaum hann bara naest tvi vid erum potttett a tvi ad koma aftur til Romar tad er svo frabaert herna.Italir eru svo yndislegir og kurteisir og ekkert nema gott um ta as segja.

Vid forum med lest i fyrramalid til Feneyja um 10:45 og erum ta i Feneyjum um 16:00 sirka.Tar eigum vid bokadan samastad tannig ad tad eru engar ahyggjur.

En eg veit ekkert hvad eg a ad segja meira tannig ad eg kved ykkur i bili.

Kvedja Sara og Geiri


» 16 hafa sagt sína skoðun

09.06.2006 12:40:25 / frk_sara

Mamma!!

Hvad er heimilsfangid hja ollum systkynum minum?Eg man ekkert svona.Verd ad fa addressur svo eg geti sent postkort.Hja Antoni lika

» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6